Löndin
Á þessari síðu verður hægt að kynna sér nánar löndin sem við erum að sækjast eftir samstarfi við, auk stöðu mála í samningaviðræðum við hvert land fyrir sig.
Pólland
Lýðveldið Pólland er níunda stærsta land Evrópu. Pólland liggur að Þýskalandi, Tékklandi, Slóvakíu, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi og Litháen og eru íbúar landsins um 38 milljónir talsins. Opinbert tungumál landsins er pólska.
Ættleiðingartengdar upplýsingar
Stofnun Ættleiðingarmála í Varsjá er æðsta vald í ættleiðingarmálum, öll mál útlendinga verða að fara í gegnum hana. Svo eru kjörforeldrarnir sendir á barnaheimili í aðlögunarferlinu. 2 börn hafa verið ættleidd frá Póllandi til Íslands.
Þegar umsókn með forsamþykki hefur verið send til CAC og hefur verið samþykkt þar, finnur CAC rétta barnið, út frá hagsmunum þess og hvort það mætir óskum fjölskyldunnar. Biðtíminn þangað til berast upplýsingar um barn eru á bilinu 1-10 mánuðir. Enn vantar upplýsingar um hversu langur tími líður þar til umsókn berst CAC og þar til hún hefur verið samþykkt, og ekki er ljóst hvort umsækjendur mega vera einhleypir. Jafnframt vantar upplýsingar um aldur barna sem ættleidd eru frá Póllandi.
Ættleiðingarferlið í Póllandi er í grófum dráttum eftirfarandi:
Skref 1: Forsamþykkisferli í heimalandi kjörforeldra
Skref 2: Beiðni kemur til ættleiðingarmiðstöðvarinnar í Varsjá. Með beiðninni þarf að fylgja forsamþykki frá landi kjörforeldra. Þá fer umsóknin á biðlista landsins.
Skref 3: Ef finnst barn, er haft samband við kjörforeldrana og þeim boðið barnið.
Skref 4: Kjörforeldrarnir fara á barnaheimilið þar sem barnið er, fá upplýsingar um barnið. Sjá barnið og taka svo ákvörðun um hvort þau ætli að ættleiða barnið eða ekki. Þá hefst formlegt ferli í Póllandi.
Skref 5: Fyrsta aðlögun kjörforeldra og barns. Kjörforeldrarnir búa í íbúð á barnaheimilinu í 2-3 daga. Barnaheimilið metur hvort kjörforeldrarnir eru þeir réttu fyrir barnið. Á þessum tíma er kjörforeldrunum frjálst að fara með barnið í skoðun til læknis, fara með það út eða hvað sem er, þó undir smá eftirliti. Út frá þessu er búin til formleg beiðni frá kjörforeldrunum um að fá að ættleiða barnið. Barnaheimilið sendir um leið frá sér greinargerð um málið og óskar eftir að formlegt ættleiðingarferli hefjist.
Skref 6: Foreldrar bíða og lagt fyrir rétt í fylkinu. Þar er á endanum úrskurðað um það hvort þessi ættleiðing sé rétti kosturinn fyrir barnið.
Skref 7: Kjörforeldrum boðið í næstu aðlögun ef úrskurður réttarins er jákvæður.
Skref 8: Aðlögun í ca 5 vikur. Kjörforeldrarnir flytja inn á barnaheimilið aftur. Barnið kemur til foreldranna og er yfir nætur. Fylgst aðeins með. Kjörforeldrarnir fá svo ekki fullt umboð og frelsi með barnið fyrr en starfsmenn barnaheimilisins meta að barnið sé tilbúið (ca 3 dagar). Í framhaldinu útvega kjörforeldrar sér íbúð í nágrenninu þar sem þeir eru með barnið. Þá er beðið eftir tíma til að mæta fyrir réttinn. Á biðtímanum kemur félagsráðgjafi á heimilið og gerir úttekt á stöðunni.
Skref 8: Kjörforeldrarnir eru boðaðir fyrir rétt og yfirheyrðir vegna ættleiðingarinnar. Í kjölfar þessarar yfirheyrslu fæst nær strax niðurstaða um hvort kjörforeldrarnir teljast hæfir eða ekki. Nokkrir dagar líða þar til kjörforeldrarnir fá formlega pappíra um að ættleiðingin sé gengin í gegn.
Kenía
Kenía var síðast bresk nýlenda þar til það öðlaðist sjálfstæði árið 1963. Breska nýlendutímabilið skildi eftir sig mark á tungumáli, menningu og lagalegu umhverfi Kenía. 31 milljón manna búa í Kenía og eru um 30 þjóðarbrot í landinu. Tungumálin eru 62 talsins en opinbert tungumál enska og Swahili. Stærsti þjóðflokkur landsins er Kikuyu og stýra þeir landinu bæði út frá hagfræðilegu og stjórnmálalegu tilliti. Núverandi forseti (jan 2009) Mwai Kibaki er af Kikuyu þjóðflokki en hann var kosinn í árslok 2007.
Áttatíu prósent þjóðarinnar er kristinn en tíu prósent múslimatrúar. Læsi er hátt í landinu en um áttatíu og fimm prósent landsmanna eldri en fimmtán ára kunna að lesa og skrifa. Þrátt fyrir góðan hagvöxt síðast liðin ár er mikil fátækt í Kenía og er talið að um helmingur þjóðarinnar lifi undir fátæktarmörkum. Helstu vandamál eru alnæmi, fátækt, glæpir og spilling.
Ættleiðingartengdar upplýsingar
Alþjóðleg ættleiðing er í samstarfi við Little Angels Network, sem hefur leyfi til að sinna ættleiðingum úr landi, meðal annars til Hollands og Svíþjóðar, http://littleangelsnetwork.org/.
Kenísk yfirvöld heimila eingöngu ættleiðingu til erlendra ríkisborgara ef þeir dvelja í landinu í að minnsta kosti sex mánuði. Fyrstu þrjá mánuðina eru þeir með barnið í fóstri meðan yfirvöld fylgjast með tengslamyndun milli verðandi kjörbarns og kjörforeldra. Síðan hefst lagalegt ferli sem endar með því að barnið er ættleitt í Kenía. Eftir það má fyrst fara með barnið úr landi. Báðir foreldrar þurfa ekki að dvelja allan tímann í Kenía, en þeir verða báðir að vera til staðar á ákveðnum tímapunktum.
Skilyrt er að:
1. Ættleiðingin fari í gegnum löggilt ættleiðingafélag, sem samþykkt er af stjórnvöldum í Kenía (Kenyan Adoption Comittee).
2. Væntanlegir foreldrar verða að vera á aldrinum 25-65 ára þegar þeir sækja um að ættleiða frá landinu.
3. Pör verða að hafa verið gift í a.m.k. þrjú ár.
4. Sérstök skilyrði eru um ættleiðingar einhleypra – konur mega ættleiða sérþarfabörn, og einhleypir sem eiga fleiri börn mega einnig ættleiða. Hvert mál er skoðað sérstaklega.
5. Barnið verður að vera a.m.k. sex vikna þegar það er tilbúið til ættleiðingar og verður að vera kenískur ríkisborgari. Flest sem fara til erlendra kjörforeldra eru á aldrinum 2-5 ára.
Dómsmálaráðuneytið hefur hafið samningaumleitanir við yfirvöld í Kenía. Við bíðum spennt eftir fréttum frá þeim.
1. Margrét Inga | 25/05/2009 klukkan 18:51
Mer líst rosalega vel á þetta og ég vona innilega að þetta gangi í gegn. Við hjónin erum búin að láta okkur dreyma um að ættleiða frá Kenýa lengi, fórum þangað fyrir nokkrum árum og heilluðumst alveg af landi og þjóð. Svo það er frábært ef þessi möguleiki opnast, þá eru líkurnar á að draumurinn rætist allvega orðnar talsvert meiri
Frábært framtak hjá ykkur.
2. Arna | 28/05/2009 klukkan 11:36
Ég var að skoða aldur þeirra sem mega ættleiða. Nú stendur að Kenýa leyfir foreldrum frá 25-65 ára að ættleiða. Mér skilst að viðmiðun á Íslandi er 45 ára. Hefur þessi aldursregla verið skoðuð með sveigjanleika í huga?