Fréttir
Vel hefur gengið að koma málum okkar í farveg undanfarnar vikur. Dómsmálaráðuneytið hefur tilkynnt okkur að umsókn okkar til löggildingar félagsins sé í skoðun, auk þess sem þegar hefur verið haft samband við ættleiðingaryfirvöld í Kenía og Póllandi og óskað eftir umræðum um samstarf um ættleiðingar. Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir okkur og við getum vonandi flutt frekari fréttir af málinu sem fyrst.
2 Ummæli Add your own
Skildu eftir svar
Trackback this post | Subscribe to the comments via RSS Feed
1. Kitta | 11/03/2009 klukkan 21:01
Sæl verið þið – og innilega til hamingju með þetta allt saman
aldeilis frábært og þarft framtak. Ég óska ykkur alls hins besta og ég ætla mér að fylgjast vel með framvindu mála hjá ykkur.
Bestu kveðjur, Kitta í Kínahópi 15
2. Guðrún Geirsdóttir | 18/03/2009 klukkan 16:18
Sæl verið þið, innilega til hamingju með þetta góða framtak:)
Það er frábært og yndislegt að Íslendingum gefist nú fleiri möguleikar á að eignast barn. Yndislegt að hægt verði núna að eignast börn sem fæðast í Afríku.