Löggilding!

13/05/2009 at 16:26 4 ummæli

Í dag bárust okkur þær frábæru fréttir að Alþjóðleg ættleiðing væri komin með löggildingu vegna fyrsta sambands okkar, sem er við Pólland. Þetta er að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni og þýðir að á næstu mánuðum getum við byrjað að taka á móti umsóknum til Póllands.

Fram að því þurfum við að heimsækja yfirvöld í Póllandi, undirbúa umsóknarferlið og hefja formlega störf. Þar sem markmið okkar voru að vera búin að fá löggildingu fyrir lok ársins 2009, er hér sannarlega um frábæran árangur að ræða og þökkum við öllum sem lögðu hönd á plóg.

Á næstu vikum má einnig búast við breyttri ásýnd félagsins hér á heimasíðunni, þar sem hún verður gerð skilvirkari og betri til miðlunar upplýsinga.

Kæru félagar, þar sem allt starf félagsins er unnið í sjálfboðavinnu og kostnaður við öflun sambanda og stofnun félagsins er töluverður, værum við ykkur mjög þakklát ef þið mynduð skrá ykkur í félagið eða styðja það á annan hátt.

Allar upplýsingar undir “Um félagið”.

Meiri fréttir mjög fljótlega.

Entry filed under: Fréttir. Tags: .

Fundur með Dómsmálaráðherra 22.apríl Skrifstofa

4 Ummæli Add your own

  • 1. Kristín Svala Jónsdóttir  |  13/05/2009 klukkan 17:50

    Alveg frábærar fréttir :)
    Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi !
    Kv. Kristín Svala

  • 2. Ingibjörg Valgeirsdóttir  |  13/05/2009 klukkan 17:54

    Frábærar fréttir!!! Til hamingju Ísland og bestu þakkir til ykkar!!

  • 3. Hulda  |  13/05/2009 klukkan 18:02

    Innilega til hamingju með löggildinguna!
    Gangi ykkur vel með framhaldið.

  • 4. Gilla  |  15/05/2009 klukkan 21:04

    Innilegar hamingju óskir með þennan stóra áfanga. Þið eigið stórt hrós skilið fyrir frábært starf, allt hægt þegar viljin og eljan er til staðar. :-)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Trackback this post  |  Subscribe to the comments via RSS Feed


Dagatal

maí 2009
S M Þ M F F L
« apr   jún »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

Most Recent Posts


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.