Archive for 22/04/2009

Fundur með Dómsmálaráðherra 22.apríl

Í dag áttu Tógófarar fund með Dómsmálaráðherra og hennar fylgdarliði. Þar var farið yfir ferðasöguna og farið yfir næstu skref í samskiptum Íslands og Tógó. Til að byrja með verða send bréf sem innihalda Íslensku lögin og vinnureglur ráðuneytisins í ættleiðingum. Konsúll Íslands í Tógo Claude Gbedey mun reka erindi okkar gagnvart yfirvöldum í Tógó. Claude er gamalreyndur og hefur góðan aðgang að ráðamönnum og er mjög gott að eiga menn eins og hann að. Þá var okkur sagt að nýjar reglur um ættleiðingarfélög væru væntanleg á næstu dögum og verður spennandi að fá þau í hendurnar.  Einnig var okkur sagt frá því að yfirvöld í Póllandi eru búin að svara erindi okkar og koma fréttir af því á næstu dögum.

22/04/2009 at 21:47 1 comment


Dagatal

apríl 2009
S M Þ M F F L
« mar   maí »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Posts by Month

Posts by Category


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.