Archive for mars, 2009
Á leið til Tógó
Fjórir fulltrúar Alþjóðlegrar ættleiðingar undirbúa sig nú fyrir ferðalag til Tógó næstkomandi föstudag. Tilgangur ferðarinnar er að hitta þarlend yfirvöld til að ræða mögulegt samstarf um ættleiðingar til Íslands. Tógóríki stöðvaði allar alþjóðlegar ættleiðingar fyrir um ári síðan, en gaf 13. mars síðastliðinn út yfirlýsingu um að landið væri opið á ný.

Við viljum því nýta tækifærið og hefjast strax handa við tengslamyndun, en þar hafa þegar verið sköpuð mjög góð sambönd vegna einnar “prívat” ættleiðingar árið 2007. Leyfum ykkur að fylgjast með ferðinni hér á síðunni.
Takk fyrir síðast!
Kæru vinir!
Takk kærlega fyrir síðast. Fundurinn var gríðarskemmtilegur, fullur salur af áhugasömu fólki. Vonumst til að geta sagt ykkur meiri fréttir af okkar málum hið fyrsta.
Kærar kveðjur
Stjórnin
Opinn kynningarfundur
Stjórn Alþjóðlegrar ættleiðingar býður öllum áhugasömum verðandi félagsmönnum að koma á opinn kynningarfund miðvikudagskvöldið 25. mars næstkomandi í Safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Fundurinn hefst kl. 20:30 en á honum verður starfsemi félagsins frá stofnun kynnt og fjallað um helstu verkefni þess. Allir áhugasamir um ættleiðingar á Íslandi eru hvattir til að koma.
Nýjustu fréttir
Vel hefur gengið að koma málum okkar í farveg undanfarnar vikur. Dómsmálaráðuneytið hefur tilkynnt okkur að umsókn okkar til löggildingar félagsins sé í skoðun, auk þess sem þegar hefur verið haft samband við ættleiðingaryfirvöld í Kenía og Póllandi og óskað eftir umræðum um samstarf um ættleiðingar. Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir okkur og við getum vonandi flutt frekari fréttir af málinu sem fyrst.