Fjölmiðlarnir áhugasamir
Ættleiðingarmál hafa fengið töluverða athygli í fjölmiðlunum síðustu tvo daga. Á sunnudaginn var Rúv með umfjöllun í kvöldfréttum og viðtal við Birnu Ósk, formann Alþjóðlegrar ættleiðingar. Í dag var svo annað viðtal í kvöldfréttum Stövar 2, þar sem velt var vöngum um samninga við ný lönd, opnun skrifstofu og stöðu samkynhneigðra í ættleiðingarmálum.
Hægt er að hlusta á fréttirnar í gegnum tenglanna hér fyrir neðan:
http://dagskra.ruv.is/ras2/4463400/2009/05/24/3/
Skrifstofa
Gleðifréttirnar halda áfram að berast! Við erum komin með skrifstofuhúsnæði og höfum því tekið formlega til starfa í Hugmyndahúsi háskólanna í gamla Saltfélaginu.
Opnunartími er 10-12 alla virka daga og 16-18 á mánudögum.
Utan þess tíma er alltaf hægt að hafa samband í: 846-6115.
Endilega hafið samband eða kíkið í heimsókn ef þið viljið kynna ykkur stöðu mála eða fá upplýsingar.
Löggilding!
Í dag bárust okkur þær frábæru fréttir að Alþjóðleg ættleiðing væri komin með löggildingu vegna fyrsta sambands okkar, sem er við Pólland. Þetta er að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni og þýðir að á næstu mánuðum getum við byrjað að taka á móti umsóknum til Póllands.
Fram að því þurfum við að heimsækja yfirvöld í Póllandi, undirbúa umsóknarferlið og hefja formlega störf. Þar sem markmið okkar voru að vera búin að fá löggildingu fyrir lok ársins 2009, er hér sannarlega um frábæran árangur að ræða og þökkum við öllum sem lögðu hönd á plóg.
Á næstu vikum má einnig búast við breyttri ásýnd félagsins hér á heimasíðunni, þar sem hún verður gerð skilvirkari og betri til miðlunar upplýsinga.
Kæru félagar, þar sem allt starf félagsins er unnið í sjálfboðavinnu og kostnaður við öflun sambanda og stofnun félagsins er töluverður, værum við ykkur mjög þakklát ef þið mynduð skrá ykkur í félagið eða styðja það á annan hátt.
Allar upplýsingar undir “Um félagið”.
Meiri fréttir mjög fljótlega.
Fundur með Dómsmálaráðherra 22.apríl
Í dag áttu Tógófarar fund með Dómsmálaráðherra og hennar fylgdarliði. Þar var farið yfir ferðasöguna og farið yfir næstu skref í samskiptum Íslands og Tógó. Til að byrja með verða send bréf sem innihalda Íslensku lögin og vinnureglur ráðuneytisins í ættleiðingum. Konsúll Íslands í Tógo Claude Gbedey mun reka erindi okkar gagnvart yfirvöldum í Tógó. Claude er gamalreyndur og hefur góðan aðgang að ráðamönnum og er mjög gott að eiga menn eins og hann að. Þá var okkur sagt að nýjar reglur um ættleiðingarfélög væru væntanleg á næstu dögum og verður spennandi að fá þau í hendurnar. Einnig var okkur sagt frá því að yfirvöld í Póllandi eru búin að svara erindi okkar og koma fréttir af því á næstu dögum.
Góð Togoferð
Sendinefnd Alþjóðlegrar ættleiðingar er nú komin heim frá Togo, en heimsóknin stóð í 10 daga. Vel gekk í ferðinni, ráðherra og formaður ættleiðingarnefndar landsins tóku vel á móti sendinefndinni og sýndu áhuga á því að hefja samstarf um ættleiðingar við Ísland. Nú taka við formleg samskipti á milli ríkjanna, sem við munum að sjálfsögðu gera okkar allra besta til að taki sem stystan tíma. Togobúar er hlýtt og vinarlegt fólk, sýndu okkur mikinn áhuga í heimsókninni og við erum að sjálfsögðu mjög spennt að heimsækja Togo aftur, vonandi með samning á milli ríkjanna meðferðis! Meira um Togo fljótlega.
Fréttir frá Togo


Íbúar Lomé, höfuðborgar Togo
Sendinefnd Alþjóðlegarar ættleiðingar á fund með Ibrahimu félagsmálaráðherra Togo í fyrramálið. Í framhaldi af honum hittum við svo ráðuneytisstjóra og formann ættleiðingarnefndar Togo. Í dag fengum við staðfestingu á því að Togo er búið að undirrita Haag sáttmálann og lögfræðingurinn okkar er bjartsýnn á fundinn á morgun. Á fundinum afhendum við Ibrahimu bréf frá Rögnu dómsmálaráðherra, þar sem óskað er eftir samstarfi á milli Íslands og Togo. Kveðja frá Togo
Á leið til Tógó
Fjórir fulltrúar Alþjóðlegrar ættleiðingar undirbúa sig nú fyrir ferðalag til Tógó næstkomandi föstudag. Tilgangur ferðarinnar er að hitta þarlend yfirvöld til að ræða mögulegt samstarf um ættleiðingar til Íslands. Tógóríki stöðvaði allar alþjóðlegar ættleiðingar fyrir um ári síðan, en gaf 13. mars síðastliðinn út yfirlýsingu um að landið væri opið á ný.

Við viljum því nýta tækifærið og hefjast strax handa við tengslamyndun, en þar hafa þegar verið sköpuð mjög góð sambönd vegna einnar “prívat” ættleiðingar árið 2007. Leyfum ykkur að fylgjast með ferðinni hér á síðunni.
Takk fyrir síðast!
Kæru vinir!
Takk kærlega fyrir síðast. Fundurinn var gríðarskemmtilegur, fullur salur af áhugasömu fólki. Vonumst til að geta sagt ykkur meiri fréttir af okkar málum hið fyrsta.
Kærar kveðjur
Stjórnin
Opinn kynningarfundur
Stjórn Alþjóðlegrar ættleiðingar býður öllum áhugasömum verðandi félagsmönnum að koma á opinn kynningarfund miðvikudagskvöldið 25. mars næstkomandi í Safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Fundurinn hefst kl. 20:30 en á honum verður starfsemi félagsins frá stofnun kynnt og fjallað um helstu verkefni þess. Allir áhugasamir um ættleiðingar á Íslandi eru hvattir til að koma.